Árið 2020 færði okkur nýjar áskoranir þar sem andleg og líkamleg heilsa og öryggi starfsfólksins okkar var í fyrirrúmi. Okkur tókst að halda uppi sama þjónustustigi og framleiðni í gegnum erfiðustu toppana á árinu og má þakka samheldni og dugnaði starfsfólksins okkar fyrir að leggja sitt af mörkum á þessum fordæmalausu tímum.
Árleg heilsufarsskoðun fór fram í haust og regluleg fræðsla um heilsu og öryggi starfsfólks var alfarið færð á rafrænt form. Að frumkvæði fólksins okkar voru Bootcamp og teygjuæfingar einnig færðar yfir í netheima og tókum við þátt í Lífshlaupinu, Hjólað í vinnuna og heilsuátakinu #hvetja á árinu þar sem við tókum höndum saman og löbbuðum, hlupum og hjóluðum til Búdapest. Rúmlega helmingur starfsfólks nýtti sér líkamsræktarstyrk á árinu 2020.
Starfsmannafélagið hélt uppi stuði á árinu með rafrænu bingói, pub quiz-i, bjórsmakki, jólahlaðborði og frábærum aðalfundi sem og náði það að nýta sumarið fyrir göngu- og fjölskylduferðir í Kerlingarfjöll og á Snæfellsnes.
Um miðjan febrúar settum við í loftið hlaðvarpið Sjálfbært samfélag. Markmið hlaðvarpsins er að vekja athygli á hversu víðtæk sjálfbærnimál eru, hversu mikið þau snerta allt okkar daglega líf og ef við tökum höndum saman þá getum við öll lagt okkar af mörkum og haft áhrif til góðs.
Heimsmarkmið í fóstur
Á seinni hluta ársins 2020 hófum við verkefnið „Heimsmarkmið í fóstur“ sem er framhaldsverkefni af vinnustofunum um heimsmarkmiðin sem fóru fram í upphafi árs 2019. Verkefnið gengur út á að auka vitundarvakningu okkar á heimsmarkmiðunum í daglegum verkefnum og í ráðgjöf til viðskiptavina samhliða því að setja okkur enn skýrari markmið sem tengjast þessu. Nokkrir faghópar fengu valin heimsmarkmið til að huga að. Verkefni þeirra var að tengja verkefnin sín við það tiltekna heimsmarkmið og greina hvernig hægt væri að gera enn betur. Lokaniðurstöðu úr verkefninu má vænta á árinu 2021.
Jafnlaunavottun
Mannvit hlaut jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍTS 85 og jafnlaunamerki velferðarráðuneytisins í árslok 2018. Mannvit setti sér metnaðarfull markmið og framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum þar sem unnið er að því að tryggja starfsfólki jöfn tækifæri og útrýma mismunun í hvaða formi sem hún birtist. Árlega fer fram jafnlaunaúttekt og voru niðurstöður ársins 2020 þannig að grunnlaun kvenna voru 1% hærri en karla en þegar skoðuð voru heildarlaun var munurinn 0,4% konum í óhag.
„Við ætlum að jafna kynjaskiptingu þeirra sem koma fram fyrir hönd Mannvits."
Á árinu 2020 voru 9 ráðnir til starfa og var starfsmannavelta 5%. Mannvit leggur áherslu á að vera fjölskylduvænn vinnustaður með sveigjanlegan vinnutíma og stuðning við barnafjölskyldur en alls fóru 10 einstaklingar í fæðingarorlof á árinu og komu allir til baka til vinnu að orlofi loknu.
Hagsmunaaðilar
Mannvit leggur áherslu á virka og aðgengilega upplýsingagjöf til hagaðila fyrirtækisins og er útgáfa sjálfbærniskýrslu liður í því. Hagaðilar eru skilgreindir sem viðskiptavinir, eigendur, starfsfólk, birgjar og samfélagið í heild sinni en Mannvit kemur að hönnun, ráðgjöf og eftirliti vegna uppbyggingar á lykil innviðum landsins.
ESG frammistöðuvísar
Vísir | Mælikvarði | 2020 | 2019 | 2018 |
S1. | Hlutfall heildarlaunagreiðslu forstjóra og miðgildis heildarlauna - greiðslur til starfsfólks í fullu starfi | 2,68 | 2,99 | á.e.v. |
S1. | Er þetta hlutfall sett fram af fyrirtæki þínu í skýrslugjöf til yfirvalda? Já/Nei | Nei | Nei | Nei |
S2. | Hlutfall miðgildis launagreiðslna karla og miðgildis launagreiðslna kvenna | 1,0 | 1,3 | á.e.v. |
S3. | Árleg breyting starfsfólks í fullu starfi, í prósentum *allt starfsfólk - ekki gerður greinamunur á fullu starfi og lægra starfshlutfalli | 5,5% | 16,4% | 10,5% |
S3. | Árleg breyting starfsfólks í hlutastarfi, í pósentum | á.e.v. | á.e.v. | á.e.v. |
S3. | Árleg breyting verktaka og/eða ráðgjafa, í prósentum | á.e.v. | á.e.v. | á.e.v. |
S4. | Kynjahlutfall innan fyrirtækisins, í prósentum | KK 76% / KVK 24% | KK 75,5% / KVK 24,5% | KK 77,6% / KVK 22,4% |
S4. | Kynjahlutfall í byrjunarstörfum og næsta starfsmannalagi fyrir ofan, í prósentum (stjórnendur) | KK 75,7% / KVK 24,3% | KK 75,2% / KVK 24,8% | KK 77,3% / KVK 22,7% |
S4. | Kynjahlutfall í störfum í efsta starfsmannalagi og sem framkvæmdastjórar, í prósentum (sérfræðingar og fagfólk) | KK 78,8% / KVK 21,2% | KK 83,3% / KVK 16,7% | KK 83,8% / KVK 16,2% |
S5. | Prósenta starfsfólks í hlutastarfi | 3,5% | 4,5% | 5,1% |
S5. | Prósenta þeirra sem eru í verktöku og/eða ráðgjöf | á.e.v. | á.e.v. | á.e.v. |
S6. | Fylgir fyrirtækið þitt stefnu er varðar kynferðislegt áreiti og/eða jafnrétti? Já/Nei | Já | Já | Já |
S7. | Tíðni slysatengdra atvika miðað við heildartíma vinnuaflsins í prósentum | 0,13% | 0,0 | 0,0 |
S8. | Fylgir fyrirtækið þitt starfstengri heilsustefnu og/eða hnattrænni stefnu um heilsu og öryggi? Já/Nei | Nei | Nei | Nei |
S9. | Fylgir fyrirtækið þitt stefnu gegn barna- og/eða nauðungarvinnu? Já/Nei | Já | Já | Já |
S9. | Ef já, nær stefnan gegn barna- og/eða nauðungarvinnu einnig til birgja og seljenda? Já/Nei | Nei | Nei | Nei |
S10. | Fylgir fyrirtækið þitt mannréttindastefnu? Já/Nei | Já | Já | Já |
* á.e.v: Á ekki við
Uppruni nafnsins „Mannvit"
Nafnið Mannvit kemur úr norrænni goðafræði. Í Snorra-Eddu segir frá Mímisbrunni, sem er undir einni af rótum asks Yggdrasils. Þar var helgistaður goðanna. Í honum var fólgin speki og mannvit. Mímir drakk af brunninum og var því fullur af vísindum. Óðinn lagði auga sitt að veði fyrir að fá að drekka af brunninum. Mannvit er í goðafræðinni ekki notað í merkingunni greind eða þekking, heldur frekar heilbrigð skynsemi eða dómgreind.